Skilmálar verslunar
ALMENNT
Bústoð áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, einnig að breyta
verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta
pantanir símleiðis.
VERÐ
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Verð á netinu geta
breyst án fyrirvara vegna gengisbreytinga eða innsláttarvillu.
GREIÐSLUR
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Teya og Netgíró
EIGNARÉTTUR
Vara er eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningviðskipti eða önnur lánaform afnema
ekki eignarrétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist seljanda.
SÉRPANTANIR
Kaupandi greiðir 20% staðfestingargjald við pöntun. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt eftir að
pöntun er farin af stað. Sérpöntunum er ekki hægt að skila.
AFHENDING
VARA SÓTT
Smávörur sem pantaðar eru í vefverslun og valið er að sækja, er hægt að sækja í verslun okkar að
Tjarnargötu 2 í Reykjanesbæ á opnunartíma verslunarinnar.
Tilkynning mun berast með tölvupósti þegar pöntunin er tilbúin.
Húsgögn og stærri vörur er hægt að sækja til okkar í verslun eða á lager. Hafðu samband við verslun í
síma 421 - 3377 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið bustod@bustod.is til að fá upplýsingar
hvenær er hægt að sækja.
SENDING Á HÚSGÖGNUM
Hægt er að fá heimsendingarþjónustu á húsgögnum og stærri vörum s.k. verðskrá hverju sinni.
Heimsendingarþjónusta er ekki innifalinn í vöruverði. Ef skemmdir verða á vörunni eftir að hún er
tekin út úr bílnum, er það á ábyrgð viðtakanda þar sem bílstjórinn er aðeins til aðstoðar og trygging
bílsins nær ekki yfir slíkt tjón.
Húsgögn sem eru send á annan átt eru send á stöð á viðkomandi stað nema um annað sé samið.
PAKKI Í PÓSTBOX / PAKKAPORT
Afhending í Póstbox er innifalin á smávörum ef verslað er fyrir kr. 20.000 eða meira.
Sendingargjald greiðist af kaupandi af vörum ef verslað er fyrir minna en 20.000kr.
Almennur afgreiðslutími pantana í Póstbox/Pakkaport er 2-5 virkir dagar.
SMS og tölvupóstur er sendur þegar pakkinn er kominn í Póstbox/Pakkaport með QR kóða.
Hámarksstærð pakka er 41 x 38 x 64 cm
Ef póstboxið er fullt fer sendingin á næsta pósthús.
Kaupandi hefur 3 daga til að sækja pakkann. Eftir það er pakkinn sendur í pósthús.
PAKKI Á PÓSTHÚS
Afending í Pósthús er innifalin á smávörum ef verslað er fyrir kr. 20.000 eða meira.
Sendingargjald greiðist af kaupanda ef verslað er fyrir minna en 20.000kr.
Almennur afgreiðslutími pantana í Pósthús er 2-5 virkir dagar.
SMS er sent á kaupanda þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.
Ath. Sendingartími í dreifbýli gæti tekið lengri tíma.
Hámarksstærð pakka er 41 x 38 x 64 cm
SKILA- OG SKIPTIRÉTTUR
Skila og skipiréttur í verslun er 14 dagar. (nema annað sé umsamið)
Reikningur, kvittun eða skiptimiði er skilyrði fyrir vöruskilum.
Varan þarf að vera ónotuð í upprunalegum umbúðum og óskemmd.
Endurgreiðsla er í formi innneignarnótu. Flutningskostnaður er ekki endurgreiddur.
Ekki er hægt að skila:
Útsöluvörum
Sérpöntuðum vörum
Vefverslun / Skila- og endurgreiðsluréttur
Samkvæmt lögum hafa viðskiptavinir rétt til þess að skila vörum sem keyptar eru í vefverslun og fá
þær að fullu endurgreiddar. Skila þarf vörum innan 14 daga frá kaupum. Varan þarf að vera ónotuð í
upprunalegum umbúðum og óskemmd. Sendingarkostnaður greiðist af kaupanda. Kaupandi er sá
sem skráður er sem slíkur á reikningi.
GÖLLUÐ VARA
Ef vara reynist gölluð eða eitthvað vantar í vöruna skal tilkynna það eins fljótt og auðið er, símleiðis í
símanúmer 421 - 3377 eða á netfangið bustod@bustod.is. Eðlilegur tímarammi telst vera allt að 30
dagar frá móttöku vörunnar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir
ábyrgðarskilmála innan eðlilegra tímamarka.
Við skriflega tilkynningu skal taka fram reikningsnúmer fyrir kaupunum eða kennitölu kaupanda.
Senda skal mynd af gallanum ásamt mynd af vörunni í heild sinni og mynd af framleiðslunúmerinu
sem er staðsett undir vörunni sé það til staðar.
ÁBYRGÐ
Allar vörur eru með tveggja ára ábyrgð til einstaklinga frá kaupdegi.
Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár frá kaupdegi.
Vörureikningur/kvittun fyrir kaupum gildir sem ábyrgðarskírteini.
Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem kaupir vöruna af Bústoð. Ábyrgðin flyst ekki á milli
eigenda.
Bústoð metur vöruna og ákveður hvort ábyrgðin gildi í hverju tilfelli fyrir sig og hvort varan sé löguð
eða skipt út fyrir sömu eða sambærilega vöru.
Ábyrgð nær ekki yfir:
Vörur sem keyptar eru á lækkuðu verði vegna útlitsgalla eða öðru slíku og eru keyptar í því ástandi
sem þær eru.
Eðlilegt slit eða skemmda vegna rangrar eða slæmrar meðferðar.
Vörur sem hafa verið settar saman á rangan hátt.
Vörur sem ekki hafa verið viðhaldið samkvæmt leiðbeiningum.
Hnökur á efni.
Svampur sem gefur eftir með tímanum.
Lög um neytendakaup er að finna hér
https://www.althingi.is/lagas/145a/2003048.html
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum
við viðskiptin. Bústoð gæti notað þessar upplýsingar til að koma skilaboðum áleiðis til viðskiptavina
sinna. Ekki undir neinum kringumstæðum verður þessum upplýsingum miðlað til þriðja aðila.
LÖG OG VARNARÞING
Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum. Ef kemur upp ágreiningur milli kaupenda
og seljanda vegna skilmála Bústoðar ehf, verður málinu vísað til íslenskra dómstóla.
Bústoð ehf.
Tjarnargata 2
230 Reykjanesbær
Sími: 421-3377
Kt: 430779-0449
VSK númer: 76497