Ultima Thule skál – 11 cm – Rain – 2 stk
Ultima Thule línan var hönnuð af Tapio Wirkkala árið 1968. Í tilefni af 50 ára afmæli línunnar kynnti Iittala í fyrsta sinn Ultima Thule í lit. Hinn dularfulli og glæsilegi litur rain varð fyrir valinu. Nýji liturinn er tenging við landslag norðurhluta Finnlands.
Við hönnun línunnar sótti Wirkkala innblástur til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Sagan segir að til hafi verið eyjan Ultima Thule sem staðsett var langt í norðri. Hún hafi verið grafin í ís og snjó og þar hafi sólin aldrei sést.
Ultima Thule vörulínan er öll framleidd í Finnlandi.
5.480 kr.
Vörunúmer: 5111026802
Flokkar: Iittala, Ultima Thule